Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 19. maí 2015 12:51
Magnús Már Einarsson
John Barnes: Sterling hefur ekki afrekað neitt
Mynd: Úr einkasafni
Raheem Sterling er mikið til umfjöllunar í enskum fjölmiðlum í dag enda er reiknað með að hann óski eftir því að fá að fara frá Liverpool í sumar.

John Barnes, fyrrum leikmaður Liverpool, segir að Sterling hafi ekkert afrekað á ferlinum og hann eigi að vera áfram hjá Liverpool.

„Raheem hefur mikla hæfileika en Liverpool gaf honum tækifærið og hann ætti að vera áfram," sagði Barnes.

„Hann hefur ekki afrekað neitt. Hann hefur ekki unnið neitt."

„Trúir einhver því að hann fari til Manchester City og verði fyrsti maður í liðið eða vilja þeir bara kaupa hann af því að þeim vantar enska leikmenn?"

Athugasemdir
banner
banner
banner