Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
   þri 19. ágúst 2014 15:55
Magnús Már Einarsson
Rúnar Páll: Reikna með að Inter sjái ekki margar holur
Rúnar Páll Sigmundsson.
Rúnar Páll Sigmundsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Præst er meiddur en annars eru allir heilir og klárir í slaginn," sagði Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari Stjörnunnar í dag eftir síðustu æfingu fyrir leik liðsins gegn Inter annað kvöld.

,,Það er mikil tilhlökkun og spennustigið er fínt. Við högum undirbúning okkar eins og alltaf fyrir leik. Við hittumst einum og hálfum tíma fyrir leik en ekkert meira en það."

Rúnar Páll hefur legið yfir Inter liðinu undanfarna daga en hann segir liðið ekki spila eins og fyrri andstæðingar Stjörnunnar í Evrópudeildinni.

,,Þeir halda boltanum vel og annað slíkt en eru ekki eins direct í sóknarleik og Lech Poznan og Motherwell."

,,Þeir eru ekki að tvöfalda mikið á köntunum eins og við höfum lent í. Þeir halda boltanum á miðjunni og spila með demantmiðju en við teljum að við getum ráðið ágætlega við það með okkar varnarleik."

,,Ég sé hellings möguleika á morgun. Ég hef bullandi trú á okkar liði í þessum leik. Við spilum góðan vörn og erum agaðir í okkar varnarleik. Það er erfitt að brjóta okkur á bak aftur og ég reikna ekki með að Inter sjái margar holur á morgun."

Uppselt varð á leikinn í síðustu viku. ,,Það verður brjáluð stemning. Það verður mikið af fólki og góður stuðnigur frá Silfurskeiðinni og öðru fólki."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner