Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 19. september 2017 21:37
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Pape Souare sneri aftur á fótboltavöllinn
Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Pape Souare sneri aftur inn á fótboltavöllinn í kvöld eftir ansi langa fjarveru.

Fyrir rúmu ári síðan lenti Souare í ansi slæmum árekstri þar sem hann meðal annars kjálkabrotnaði, lærbeinsbrotnaði og þá þurfti að klippa hann út úr bifreiðinni sem hann var í.

Tvísýnt var um það hvort hann gæti spilað fótbolta aftur, en hann var staðráðinn í að koma til baka.

Hann gerði það svo í kvöld þegar hann kom inn á sem varamaður þegar Crystal Palace vann 1-0 sigur á Huddersfield.

Sjá einnig:
Souare opnar sig - „Ég man eftir öllu um slysið"



Athugasemdir
banner
banner
banner