Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 19. nóvember 2017 14:53
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: La Liga rifjar upp mörk hjá Eiði Smára
Mynd: Getty Images
Spænska úrvalsdeildin, La Liga, rifjar í dag upp mörk sem EIður Smári Guðjohnsen skoraði á sínum tíma með Barcelona.

Eiður Smári lék 72 leiki og skoraði 10 mörk fyrir spænska stórveldið Barcelona á árunum 2006 til 2009.

Á sínu fyrsta tímabili í Katalóníu skoraði hann fimm mörk í spænsku úrvalsdeildinni, en tvö af þessum mörkum komu gegn Mallorca fyrir akkúrat 11 árum í dag, 19. nóvember.

Eiður kom Börsungum í 2-0 í leiknum sem vann 4-1.

La Liga ákvað að rifja upp þessi mörk í dag, en það eru væntanlega einhverjir Íslendingar sem muna eftir þeim. Fyrsta snerting Eiðs í báðum mörkunum er mjög snyrtileg.

Hér að neðan má sjá mörkin.



Athugasemdir
banner
banner
banner