Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
banner
   þri 20. janúar 2015 13:13
Elvar Geir Magnússon
Ronaldo sagður vera kominn með nýja kærustu
Mynd: Instagram
Cristiano Ronaldo virðist hafa fundið ástina aftur, innan við viku eftir að sambandi hans og Irina Shayk lauk.

Slúðurmiðlar segja að Ronaldo sé byrjaður að hitta spænska sjónvarpskonu sem heitir Lucia Villalon.

Meðfylgjandi mynd er af Ronaldo með nýju kærustunni og gullknettinum sem hann vann á dögunum.

Villalon er 26 ára og vinnur sem sjónvarpskona en er menntuð bæði í lögfræði og blaðamennsku.

Hún var ásamt vinkonum sínum í stúkunni þegar Real Madrid vann 3-0 sigur á Getafe um liðna helgi.
Athugasemdir
banner
banner
banner