Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 20. mars 2018 08:00
Ingólfur Stefánsson
Giroud gerir grín að Pogba - „Hvað segiru Pikachu?"
Mynd: Getty Images
Það voru fagnaðarfundir þegar liðsmenn franska landsliðsin hittust fyrir komandi vináttulandsleiki.

Miðjumaðurinn Paul Pogba vakti athygli í gær fyrir nýja hárgreiðslu en hann bætti við bláum lit í hárið sitt.

Oliver Giroud framherji Chelsea nýtti tækifærið þegar leikmenn landsliðsins hittust í gær og skaut létt á útlit Pogba og líkti honum við Pokémon karakterinn Pikachu.

Í myndbandi sem Franska knattspyrnusambandið birti á Twitter segir Giroud „Ca Va Pikachu?" við Pogba en það þýðist yfir á íslensku sem „Hvað segiru Pikachu?"

Myndbandið má sjá hér að neðan:




Athugasemdir
banner