Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 20. apríl 2018 19:19
Ingólfur Stefánsson
Powell verður ekki með Þór í sumar - Fékk ekki atvinnuleyfi
Mynd: GettyImages
Bandaríski framherjinn Anthony Powell sem áætlað var að myndi spila með Þór Akureyri í Inkasso deildinni í sumar fékk ekki atvinnuleyfi hér á landi.

Hann mun því ekki spila með liðinu í sumar. Anthony lék þrjá leiki með Þór á undirbúningstímabilinu í vetur og skoraði í þeim fjögur mörk.

Leikmaðurinn hefur nú þegar fundið sér nýtt félag en hann mun spila í Costa Rica á næsta tímabili.

Þetta er annað áfallið sem Þórsarar verða fyrir á stuttum tíma en á dögunum varð ljóst að varnarmaðurinn Admir Kubat sem kom til félagsins frá Þrótti Vogum verði ekki með í sumar vegna meiðsla.
Athugasemdir
banner
banner