Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 20. október 2017 18:30
Elvar Geir Magnússon
Stefán Teitur aftur til reynslu hjá Norrköping
Stefán Teitur er í Svíþjóð.
Stefán Teitur er í Svíþjóð.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stefán Teitur Þórðarson, leikmaður ÍA, er mættur aftur til Norrköping í Svíþjóð og æfir með félaginu.

Norrköping er í sjötta sæti sænsku úrvalsdeildarinnar.

Stefán Teitur er 19 ára sóknarmaður en hann fór til Norrköping til reynslu fyrir ári síðan og félagið vill skoða hann nánar.

Í samtali við nt.se segir Stefán að hann telji sig betri leikmann en fyrir ári.

Stefán kom við sögu í 19 leikjum í deild og bikar hjá ÍA í sumar og skoraði tvö mörk. Skagamenn féllu úr Pepsi-deildinni.
Athugasemdir
banner
banner