Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 21. febrúar 2017 16:11
Elvar Geir Magnússon
Bonucci í skammarkrókinn - Kallaður typpahaus af þjálfaranum
Leonardo Bonucci var óþekkur.
Leonardo Bonucci var óþekkur.
Mynd: Getty Images
Miðvörðurinn Leonardo Bonucci hjá Juventus verður í stúkunni á morgun þegar liðið mætir Porto í fyrri viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Bonucci reifst við þjálfarann Massimiliano Allegri og var augljóslega heitt í hamsi í 4-1 sigrinum gegn Palermo á sunnudag.

Myndbandsupptökur náðu því þegar Allegri kallaði ítalska landsliðsmanninn "typpahaus" eða "dickhead" og öskraði á hann "fuck off" í rifrildi sem hélt áfram eftir að flautað var til leiksloka. Bonucci öskraði svo á Allegri að hann ætti að fara til helvítis.

Allegri var allur hinn rólegasti á fréttamannafundi eftir leikinn.

„Það var misskilningur, ekkert stórmál. Svona hlutir gerast," sagði Allegri.

Málið er þó stærra en Allegri talaði um því Bonucci er skilinn eftir utan hóps í leiknum gegn Porto.
Athugasemdir
banner
banner
banner