Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 21. mars 2015 05:55
Brynjar Ingi Erluson
England í dag - Gylfi á Villa Park
Gylfi Þór Sigurðsson
Gylfi Þór Sigurðsson
Mynd: Getty Images
Sjö leikir fara fram í enska boltanum í dag en það verður öflugur hádegisleikur á dagskrá þar sem Manchester City og WBA mætast.

Manchester City er í bullandi titilbaráttu og þarf nauðsynlega á sigri að halda til þess að halda í við Chelsea en leikurinn fer fram á Etihad leikvanginum.

Southampton mætir þá Burnley í hörkuslag á meðan Arsenal fer á St. James Park og mætir Newcastle.

Tottenham Hotspur fær þá Leicester í heimsókn og Stoke mætir Crystal Palace. Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Swansea City heimsækja Aston Villa áður en West Ham og Sunderland loka deginum klukkan 17:30 í frumraun Dick Advocaat.

Leikir dagsins:
12:45 Manchester City - WBA (Beint á Stöð 2 Sport 2)
15:00 Southampton - Burnley (Beint á Stöð 2 Sport 4 )
15:00 Newcastle - Arsenal (Beint á Stöð 2 Sport 2 )
15:00 Tottenham - Leicester (Beint á Stöð 2 Sport 3 )
15:00 Stoke - Crystal Palace (Beint á Stöð 2 Sport 5 )
15:00 Aston Villa - Swansea (Beint á Stöð 2 Sport)
17:30 West Ham - Sunderland (Beint á Stöð 2 Sport 2 )
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner