Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 21. nóvember 2017 17:00
Magnús Már Einarsson
Júlíus og félagar á toppnum í Hollandi
Mynd: Heerenveen
Júlíus Magnússon spilaði allan leikinn með varaliði Heerenveen í 3-1 sigri á Excelsior í gær.

Júlíus hefur spilað alla leiki varaliðs Heerenveen á tímabilinu en liðið er á toppnum í varliðsdeildinni í Hollandi.

Heerenveen hefur krækt í þrettán stig í fyrstu sex leikjunum.

Júlíus, sem var áður á mála hjá Víkingi R og Leikni R, var í byrjunarliðinu í tveimur leikjum U21 árs landsliðsins í mánuðinum.

Þar byrjaði hann í 1-0 tapi gegn Spáni og í sigri á Eistlendingum.
Athugasemdir
banner
banner
banner