Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 22. febrúar 2017 18:30
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Mkhitaryan gæti misst af úrslitaleiknum
Mkhitaryan fagnar marki sínu.
Mkhitaryan fagnar marki sínu.
Mynd: Getty Images
Manchester United bíða fregna um meiðsli Henrikh Mkhitaryan en hann fór útaf á 25. mínútu gegn Saint-Etienne í dag.

Svo gæti farið að Mkhitaryan muni missa af úrslitaleik deildabikarsins gegn Southampton en leikurinn fer fram á sunnudag.

Staðan er 1-0 fyrir Man Utd en það var einmitt Mkhitaryan sem skoraði markið. Marcus Rashford kom inn á í stað Mkhitaryan.

Ekki er vitað hvort að meiðslin hafi verið alvarleg eða að Man Utd hafi ekki viljað taka neina sénsa vegna úrslitaleiksins.

Mkhitaryan hefur verið að spila vel fyrir Man Utd á undanförnum mánuðum en hann spilaði lítið í upphafi tímabils.



Athugasemdir
banner