Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 22. febrúar 2017 22:00
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Stjarna Napoli að skrifa undir nýjan samning
Mertens er að skrifa undir nýjan samning við Napoli
Mertens er að skrifa undir nýjan samning við Napoli
Mynd: Getty Images
Dries Mertens, lykilmaður Napoli er að skrifa undir nýjan samning við félagið þrátt fyrir áhuga víða um Evrópu.

Belginn hefur spilað feiknavel á þessu tímabili og dregið til sín áhuga stórliða Evrópu.

Mertens hefur skorað 16 mörk í jafn mörgum byrjunarliðsleikjum í ítölsku úrvalsdeildinni en aðeins er beðið eftir undirskrift hans og mun nýi samningurinn færa honum 2.5 milljónir evra í árslaun, eða tæpar 300 milljónir íslenskar krónur.

Mertens kom til Napoli árið 2013 frá PSV en hann hefur einnig spilað 55 landsleiki fyrir Belgíu.

Napoli er 9 stigum á eftir toppliði Juventus.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner