Ekki er ljóst hversu lengi Emil Atlason verður frá keppni eftir meiðslin sem hann varð fyrir í leik Þróttar og Þórs í Inkasso-deildinni á laugardaginn.
Emil var borinn af velli í fyrri hálfleik eftir að hafa meiðst á hné. Um meiðsli á liðböndum er að ræða en ekki er ljóst ennþá hvort krossbandið hafi einnig orðið fyrir skaða.
Emil var borinn af velli í fyrri hálfleik eftir að hafa meiðst á hné. Um meiðsli á liðböndum er að ræða en ekki er ljóst ennþá hvort krossbandið hafi einnig orðið fyrir skaða.
„Þetta kemur í ljós eftir myndatöku. Þetta var alveg eins og hjá Zlatan (Ibrahimovic) um daginn, hnéð fór til baka," sagði Gregg Ryder, þjálfari Þróttar, við Fótbolta.net í dag.
„Það þarf að bíða eftir að bólgan fari til að hann geti farið í myndatöku og við erum ekki með neina dagsetningu á því ennþá."
Ólafur Hrannar Kristjánsson leysti Emil af hólmi í leiknum á laugardaginn en hann kom frá Leikni R. í síðustu viku.
Þá styttist í að framherjinn Viktor Jónsson snúi aftur eftir langa fjarveru vegna meiðsla. Viktor meiddist í janúar og reiknað var með að hann myndi missa af fyrri hluta sumars. Bati hans er aftur á móti hraðari en reiknað hafði verið með.
„Hann ætti að verða klár eftir 2-3 vikur. Honum hefur gengið betur en við bjuggumst við og hann er byrjaður að æfa," sagði Gregg.
Grétar Sigfinnur Sigurðarson, fyrirliði Þróttar, var ekki með á föstudaginn vegna meiðsla á rifbeini en að sögn Gregg gæti hann náð leiknum gegn Gróttu á föstudag.
Athugasemdir