Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 22. nóvember 2017 06:00
Magnús Már Einarsson
Heimir Daði tekur við GG (Staðfest)
Mynd: GG
Heimir Daði Hilmarsson hefur skrifað undir samning við knattspyrnufélagið GG um að þjálfa liðið í 4. deildinni á næsta tímabil.

Heimir er öllum hnútum kunnugur innan GG enda verið bæði formaður stjórnar og leikmaður hjá félaginu.

„Stjórn GG býður Heimir velkominn til starfa og vill einnig þakka þeim Ray Anthony Jónssyni og Scott Mckenna Ramsay kærlega fyrir sín störf en þeir hafa þjálfað liðið síðustu tvö tímabil og staðið sig með mikilli prýði," segir í yfirlýsingu frá GG.

Ray Anthony tók á dögunum við kvennaliði Grindavíkur sem leikur í Pepsi-deildinni.

GG endaði í 6. sæti í A-riðli í 4. deildinni síðastliðið sumar.
Athugasemdir
banner
banner