Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 23. mars 2024 14:27
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Man City á toppinn eftir sigur á Man Utd
Mynd: Getty Images

Manchester City W 3 - 1 Manchester Utd W
1-0 Jessica Park ('37 )
2-0 Jessica Park ('45 )
3-0 Khadija Shaw ('46 )
3-1 Kerstin Casparij  ('74 Sjálfsmark)


Manchester City er komið á toppinn í efstu deild í ensku kvennadeildinni eftir sigur á grönnum sínum í Manchester United í dag.

City var með 2-0 forystu í hálfleik en Jessica Park skoraði bæði mörkin, hennar fyrstu mörk í deildinni á tímabilinu.

Khadija Shaw bætti þriðja markinu við áður en Kerstin Casparij varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark og minnka muninn fyrir Manchester United.

City er með þriggja stiga forystu á Chelsea á toppi deildarinnar en Chelsea á leik til góða gegn West Ham á útivelli á morgun. United er í 4. sæti 15 stigum á eftir City.


Athugasemdir
banner