Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 23. mars 2024 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Real Madrid vill bjóða Lunin nýjan samning
Mynd: EPA

Real Madrid hefur mikla trú á úkraínska landsliðsmarkverðinum Andriy Lunin en félagið vill eindregið bjóða honum nýjan samning.


Lunin er aðalmarkvörður úkraínska landsliðsins sem mætir því íslenska í úrslitaleik um sæti á EM á þriðjudaginn en Carlo Ancelotti stjóri Real Madrid hefur mikla trú á honum.

Núgildandi samningur hans við Real Madrid rennur út sumarið 2025.

Lunin hefur staðið í rammanum hjá Real á þessari leiktíð þar sem Thibaut Courtois er að berjast við erfið meiðsli en Lunin heldur Kepa Arrizabalaga á bekknum.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner