Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 23. mars 2024 23:02
Brynjar Ingi Erluson
Southgate um Walker: Eitthvað sem við þurfum að meta á næstu dögum
Mynd: Getty Images
Gareth Southgate, þjálfari enska landsliðsins, er óviss hvort Kyle Walker verði með liðinu gegn Belgíu á þriðjudag.

Walker fór meiddur af velli eftir aðeins tuttugu mínútur í 1-0 tapinu gegn Brasilíu í kvöld.

Varnarmaðurinn kvartaði yfir sársauka aftan í læri og gat ekki haldið leik áfram.

„Við vitum það ekki enn,“ sagði Southgate er hann var spurður út í alvarleika meiðslana.

„Hann fann eitthvað til en þetta er ekki leikmaður sem er oft meiddur, þannig við erum ekki alveg vissir hvað amar að. Þetta er eitthvað sem við þurfum að meta á næstu dögum,“ sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner