Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 23. mars 2024 11:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Wirtz: Veit ekki hvað Alonso gerir en plönin mín eru skýr
Mynd: Getty Images

Florian Wirtz leikmaður Leverkusen og þýska landsliðsins vill vera áfram hjá liðinu þrátt fyrir mikinn áhuga frá stórliðum í Evrópu.


Wirtz hefur verið frábær í liði Leverkusen sem hefur enn ekki tapað einum einasta leik í öllum keppnum á þessari leiktíð.

Hann hefur verið orðaður við stórlið á borð við Manchester City, Real Madrid og Bayern Munchen. Xabi Alonso stjóri Leverkusen er einnig gríðarlega eftirsóttur en Bayern og Liverpool virðast berjast um krafta hans.

Wirtz er í þýska landsliðshópnum sem mætir Frakklandi í æfingaleik í kvöld og Hollandi á þriðjudaginn.

„Ég einbeiti mér af landsliðinu þessa dagana. Eftir það er ég með mikið af markmiðum með Leverkusen. Ég veit ekki hvað Xabi Alonso gerir en plönin mín eru skýr," sagði Wirtz.


Athugasemdir
banner
banner
banner