Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 23. apríl 2017 19:30
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Bikarinn: Dramatík er KFR komst áfram
KFR er komið áfram í næstu umferð
KFR er komið áfram í næstu umferð
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Tveimur hörkuleikjum er lokið í Borgunarbikarnum.

Fyrr í dag áttust við Stokkseyri og Kría. Þórhallur Aron Másson skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu og tryggði Stokkseyri sæti í næstu umferð.

Þar fá þeir risa leik en þeir mæta Leikni Reykjavík sem leikur í Inkasso-deildinni.

Í seinni leiknum mættust Gnúpverjar og KFR. Leikurinn var í járnum þangað til rúmlega stundarfjórðungur var til leiksloka. Þá komust Gnúpverjar yfir og virtist allt stefna í að þeir kæmust áfram.

En undir lokin tók KFR við sér og jafnaði Goran Jovanovski á 87. mínútu. Það var svo Jóhann Guðmundsson sem skaut KFR áfram í næstu umferð með marki á 90. mínútu.

Í næstu umferð mætir KFR 3. deildarliði Berserkja.

Stokkseyri 1 - 0 Kría
1-0 Þórhallur Aron Másson úr víti ('62)

Gnúpverjar 1 - 2 KFR
1-0 Hlynur Magnússon ('74)
1-1 Goran Jovanovski ('87)
1-2 Jóhann Guðmundsson ('90)



Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner
banner