Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   þri 23. maí 2017 18:00
Magnús Már Einarsson
Tianjin Quanjian hefur ekki heyrt í Costa í sex mánuði
Diego Costa.
Diego Costa.
Mynd: Getty Images
Kínverska félagið Tianjin Quanjian segist ekki hafa heyrt í Diego Costa eða umboðsmanni hans síðustu sex mánuðina.

Hinn 28 ára gamli Costa var sterklega orðaður við Tianjin í janúar síðastliðnum.

Costa hefur áfram verið orðaður við kínverska félagið að undanförnu en í yfirlýsingu frá Tianjin kemur fram að ekkert sé í gangi í þá áttina.

„Við höfum engar áætlanir um að taka þátt í óheiðarlegri samkeppni og þurfa að borga hæsta verðið," sagði í yfirlýsingu Tianjin.

Tianjin komst upp í úrvalsdeildina í Kína í fyrra en Fabio Cannavaro er þjálfari liðsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner