Ægir 2 - 2 Berserkir
0-1 Karel Sigurðsson (10´)
1-1 Jonathan Hood (15´)
2-1 Milan Djurovic (37)
2-2 Kormákur Marðarson (39´)
0-1 Karel Sigurðsson (10´)
1-1 Jonathan Hood (15´)
2-1 Milan Djurovic (37)
2-2 Kormákur Marðarson (39´)
Tveir leikir voru á dagsskrá í 3.deild karla í kvöld og var fyrri leiknum að ljúka og var það viðureign Ægis og Berserkja.
Þetta var stórfjörugur leikur þar sem að spennan var til leiksloka.
Það voru gestirnir sem að komust yfir á 10. mínútu leiksins með marki frá Karel Sigurðssyni.
Heimamenn voru þó ekki lengi að jafna því að á 15. mínútu skoraði Jonathan Hood.
Staða var 1-1 þar til á 37. mínútu þegar Milan skoraði fyrir heimamenn en aftur jafnaði hitt liðið skömmu síðar og var það Kormákur Marðarson sem að jafnaði fyrir Berserki.
Hvorugu liðinu tókst að skora í seinni hálfleiknum og því fóru leikar 2-2.
Athugasemdir