Manchester United hefur fengið ansi öflugan starfsmann en það er Javier Ribalta sem var yfirnjósnari Juventus.
United hefur verið að taka til í njósnakerfi sínu síðustu mánuði til að hafa besta netið yfir efnilega leikmenn í heiminum.
United hefur verið að taka til í njósnakerfi sínu síðustu mánuði til að hafa besta netið yfir efnilega leikmenn í heiminum.
Ribalta er talinn vera lykilmaður í velgengni Juventus og sagður einn sá færasti í bransanum.
Í tilkynningu frá Ítalíumeisturunum er honum þakkað fyrir góð störf.
Ráðning Ribalta til Manchester United mun ekki hafa áhrif á áætlanir félagsins á leikmannamarkaði sumarsins.
Athugasemdir