Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 23. ágúst 2016 17:06
Magnús Már Einarsson
Myndband: Raggi Sig í læknisskoðuninni hjá Fulham
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fulham hefur staðfest kaupin á varnarmanninum Ragnari Sigurðssyni en hann kemur til félagsins frá Krasnodar í Rússlandi. Kaupverðið verður ekki gefið upp.

Ragnar gerir tveggja ára samning en Fulham á möguleika á að framlengja þann samning um eitt ár til viðbótar.

Ragnar sló í gegn á EM í sumar og Fulham hafði betur í baráttunni við önnur félög um þjónustu hans.

Fulham birti síðdegis í dag myndband á Twitter þar sem sjá má svipmyndir úr læknisskoðun Ragnars hjá félaginu.

Myndbandið má sjá hér að neðan.



Athugasemdir
banner
banner
banner