Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 23. ágúst 2016 10:45
Elvar Geir Magnússon
Sigurmark FH var sjálfsmark Stjörnumanna
Kassim og vinir hans.
Kassim og vinir hans.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
FH vann 3-2 sigur gegn Stjörnunni í toppslagnum í Pepsi-deild karla í gær.

Fyrst um sinn var sigurmarkið í leiknum skráð á varnarmanninn Kassim Doumbia hjá FH en hefur nú verið breytt í sjálfsmark.

Kassim viðurkenndi í viðtali við Fótbolta.net eftir leikinn að markið hafi í raun verið sjálfsmark.

Í Pepsi-mörkunum í gær var atvikið skoðað ítrekað og niðurstaðan sú að Heiðar Ægisson hafi skotið boltanum í Daníel Laxdal og inn.

Smelltu hér til að sjá markið af Vísi



Athugasemdir
banner
banner
banner