Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   mið 23. ágúst 2017 21:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Liverpool myndi hafna 150 milljónum í Coutinho
Mynd: Getty Images
Misvísandi fréttir eru þessa stundina um Philippe Coutinho, leikmann Liverpool. Sumir segja að Barcelona hafi gefsti upp á honum, aðrir segja að Börsungar séu að gera nýtt tilboð.

Nýja tilboðið er sagt vera upp á 138 milljónir punda.

Liverpool vill ekki selja Coutinho og þeir ætla ekki einu sinni að skoða það tilboð sem Barcelona leggur fram í Brasilíumanninn.

KKaveh Solhekol, sem vinnur hjá Sky Sports, segir að Liverpool muni ekki einu sinni samþykkja 150 milljónir punda í Coutinho.

Coutinho vill fara til Barcelona, en hann er búinn að biðja um sölu. Liverpool ætlar hins vegar ekki að selja hann og þeim er sama hvað Barcelona býður, þeir ætla ekki að selja Coutinho!

Liverpool er komið í riðlakeppni Meistaradeildarinnr eftir sigur á Hoffenheim í kvöld. Coutinho tók ekki þátt í leiknum.



Athugasemdir
banner
banner