Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 23. nóvember 2015 22:20
Ívan Guðjón Baldursson
Pardew: Gekk bara ekki upp í kvöld
Mynd: EPA
Alan Pardew, stjóri Crystal Palace, segir að hlutirnir hafi einfaldlega ekki gengið upp hjá sínum mönnum í kvöld.

Palace fékk Sunderland í heimsókn og tapaði óvænt eftir að Jermain Defoe skoraði eftir varnarmistök Scott Dann á 80. mínútu leiksins.

„Við vorum mikið með boltann en þetta gekk bara ekki upp hjá okkur í kvöld, svona gerist í fótboltanum," sagði Pardew eftir leikinn.

„Við gerðum mistök sem þeir nýttu og það skóp sigurinn. Scott Dann misreiknaði aðeins hlaupið hans Defoe en Dann hefur verið frábær fyrir okkur á tímabilinu og við ætlum að gera betur næsta laugardag.

„Fyrirgjafir og lokasendingar voru ekki nógu góðar hjá okkur og báru engan árangur. Þeir spiluðu einfaldan bolta, gerðu það vel og unnu."

Athugasemdir
banner
banner
banner