Enn eitt jafnteflið kom í Afríkumótinu í kvöld þegar Kamerún og Gínea gerðu 1-1 jafntefli. Allir fjórir leikir D-riðilsins hafa endað 1-1 og því gjörsamlega allt galopið fyrir lokaumferðina í riðlinum!
Í dag gerðu Fílabeinsströndin og Malí jafntefli.
Benjamin Moukandjo kom Kamerún yfir í kvöld þegar hann skoraði beint úr hornspyrnu en Gínea náði að jafna metin.
Kamerún 1 - 1 Gínea
1-0 Benjamin Moukandjo ('13)
1-1 Ibrahima Traore ('42)
Athugasemdir