Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 24. apríl 2014 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Lengjubikar kvenna: Stjarnan í úrslit eftir sigur á Val
Rúna Sif skoraði fyrir Stjörnuna
Rúna Sif skoraði fyrir Stjörnuna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan 2 - 0 Valur
1-0 Rúna Sif Stefánsdóttir ('59 )
2-0 Ásgerður Stefanía Baldursdóttir ('72 )

Stjarnan sigraði Val með tveimur mörkum gegn engu er liðin mættust í undanúrslitum Lengjubikars kvenna í gær en bæði mörkin komu á síðasta hálftímanum.

Rúna Sif Stefánsdóttir skoraði fyrra mark Stjörnunnar á 59. mínútu en hún var afar öflug í liði Stjörnunnar á síðustu leiktíð.

Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, fyrirliði liðsins, skoraði þá síðara markið þegar um það bil tuttugu mínútur voru eftir af leiknum.

Lokatölur því 2-0 en Stjarnan er því komin í úrslitaleik Lengjubikarsins þar sem liðið mætir Breiðablik eða Þór/KA.
Athugasemdir
banner
banner
banner