Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 24. apríl 2015 14:55
Elvar Geir Magnússon
Líkleg byrjunarlið Arsenal og Chelsea
Mynd: Guardian
Á sunnudag klukkan 15 mætast tvö efstu lið ensku úrvalsdeildarinnar; Arsenal og Chelsea.

Helmingslíkur eru taldar á að varnarmaðurinn Per Mertesacker verði klár en hann fór meiddur af velli vegna ökklavandræða í undanúrslitum enska bikarsins.

Mikel Arteta og Alex Oxlade-Chamberlain eru ekki leikfærir eftir að hafa verið að glíma við við ökkla- og nárameiðsli.

Diego Costa gæti spilað en hann hefur verið á meiðslalistanum. Tekin verður ákvörðun rétt fyrir leik.

Loic Remy er frá vegna kálfameiðsla svo hinn ungi Dominic Solanke gæti verið á bekknum.

Arsenal hefur ekki tekist að skora í síðustu fjórum leikjum sínum gegn Chelsea.

Á meðfylgjandi mynd eru líkleg byrjunarlið að mati Guardian en hér að neðan má sjá stöðuna í deildinni:
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner