Ísland mætir Króatíu í lokaleik sínum í D-riðli Heimsmeistaramótsins á þriðjudaginn í Rostov klukkan 18:00.
Á sama tíma mætast Nígería og Argentína í sama riðli en þau ásamt Íslandi eru öll að berjast um lausa sætið upp úr riðlinum og fylgja þar með Króatíu í 16-liða úrslitin.
Á sama tíma mætast Nígería og Argentína í sama riðli en þau ásamt Íslandi eru öll að berjast um lausa sætið upp úr riðlinum og fylgja þar með Króatíu í 16-liða úrslitin.
Kári Árnason, varnarmaður íslenska landsliðsins var spurður á fréttamannafundi landsliðsins í morgun, út í viðureign Nígeríu og Argentínu og hvernig leik hann búist við.
„Það er erfitt að segja til um það. Þetta eru tvo gríðarlega sterk sóknarlið. Argentína þarf að rétta úr kútnum. Ég sé þá ekki fara af HM án þess að vinna einn leik," sagði Kári sem vonast eftir sigri Argentínu enda þarf Ísland að treysta á sigur Argentínu til að eiga möguleika á að fara upp úr riðlinum. Sigur Argentínu má þó ekki vera stór.
„Nígería eru sterkir í skyndisóknum og eru með gríðarlegan hraða sérstaklega i sóknarlínunni. Þetta gæti orðið hættulegt ef Messi og félegar eru að halda boltanum við teig Nígeríu og ef þeir missa boltann þá eru Nígeríumenn góðir í að refsa."
Athugasemdir