Ýmsir fjölmiðlar greindu frá andláti sóknarmannsins Wesley Lopes á þriðjudaginn.
Flestir þeirra sögðu Brassann hafa fengið hjartaáfall á æfingu en aðrir sögðu hann hafa verið myrtan.
Flestir þeirra sögðu Brassann hafa fengið hjartaáfall á æfingu en aðrir sögðu hann hafa verið myrtan.
„Ég frétti að einhver hafði myrt mig, þvílíkur brandari!" sagði Lopes við rúmensku vefsíðuna ProSport.
„Mér hefur aldrei liðið betur, ég veit ekki hvaðan þessar slæmu fréttir koma en ég held að þetta hafi kannski byrjað sem brandari."
Lopes verður 36 ára í nóvember og leikur fyrir Barbarense í Brasilíu, en hann gerði garðinn frægan hjá Vaslui í rúmenska boltanum þar sem hann er markahæsti útlendingur sögunnar með 62 mörk.
Athugasemdir