Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
   sun 24. september 2017 16:40
Aron Elvar Finnsson
Óli Stefán: Liðið var barn og er rétt að verða unglingur núna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það er auðvitað hundfúlt að tapa eins og alltaf, sérstaklega á móti þessu liði,“ sagði Óli Stefán Flóventsson þjálfari Grindavíkur eftir 2-1 tap gegn KA í 21.umferð Pepsi-deildar karla í dag.

Lestu um leikinn: KA 2 -  1 Grindavík

„Það er týpískt að svona stór mistök sem við gerum varnarlega í dag skeri úr um hvort liðið vinni og tapi. Eftir svona stór mistök eins og við gerum í fyrri hálfleik þá er ég mjög ánægður með það hvernig þeir komu inn, héldu ró og skipulagi og voru með fulla stjórn á leiknum í seinni hálfleik.“

Öll mörk leiksins komu eftir lélegan varnarleik eða markvörslu og segir Óli Stefán að það sé vissulega áhyggjuefni hjá sínu liði.
„Ég hef stórar áhyggjur af þessu hjá mínu liði. Í þessari seinni umferð höfum við verið að fá allt of mikið af mörkum á okkur. Oft á tíðum eru þetta svona einstaklingsmistök og ég vil kalla þetta bara óþroska í okkar leik. Það er kannski eðlilegt, við erum komnir langt á stuttum tíma.“

Viðtalið við Óla Stefán má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner