Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 25. febrúar 2015 06:00
Alexander Freyr Tamimi
Jardim: Mörg lið vildu mæta Monaco
Leonardo Jardim mætir Arsenal kokhraustur.
Leonardo Jardim mætir Arsenal kokhraustur.
Mynd: Getty Images
Leonardo Jardim, þjálfari Monaco, segir að sínir menn geti komið á óvart og slegið Arsenal úr leik í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar, en fyrri leikur liðanna fer fram á Emirates leikvangnum í kvöld.

Jardim segir að mörg lið hafi viljað mæta Monaco í 16-liða úrslitunum en hefur þó fulla trú á sínum mönnum.

,,Arsenal hefur bætt sig mikið undanfarin tvö til þrjú ár. Okkar markmið er að vera þéttir fyrir og hafa hemil á lykilsóknarmönnum Arsenal," sagði Jardim.

,,Það voru ekki bara stuðningsmenn Arsenal sem voru ánægðir eftir dráttinn, við vorum það líka."

,,Augljóslega vildu mörg lið mæta Monaco, en það þýðir ekki að við höfum eitthvað minni metnað fyrir þetta einvígi. Enginn býst við því að við vinnum, en það ætti ekki að koma í veg fyrir að við förum í 8-liða úrslitin."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner