Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 25. maí 2015 19:46
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu markið: Óskar Örn skoraði eftir skógarhlaup
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Óskar Örn Hauksson gerði sigurmark KR gegn ÍBV í fyrsta leik kvöldsins í Pepsi-deild karla.

Markið kom á 79. mínútu eftir fyrirgjöf frá Gunnari Þóri Gunnarssyni sem rataði beint á kollinn á Óskari Erni og í netið.

Guðjón Orri Sigurjónsson í marki gestanna gerði Óskari þó auðvelt fyrir með skrítnu úthlaupi sínu sem skilaði engu nema auðu marki fyrir Óskar til að skalla knöttinn í.

Þetta er þriðji sigur toppliðs KR í röð í deildinni á meðan Eyjamenn eru á botni deildarinnar með eitt stig eftir fimm umferðir.


Athugasemdir
banner
banner