Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 25. júní 2015 17:00
Magnús Már Einarsson
Firmino: Fer til Liverpool til að berjast um titla
Roberto Firmino.
Roberto Firmino.
Mynd: Getty Images
Roberto Firmino segist hafa ákveðið að ganga í raðir Liverpool til að berjast um titla.

Liverpool keypti Firmino frá Hoffenheim á 29 milljónir punda í vikunni en leikmaðurinn er þessa dagana með brasilíska landsliðinu í Suður-Ameríkubikarnum.

Liverpool hefur einungis unnið einn titil undanfarin níu árin en Firmino hefur trú á því að gengi liðsins verði betra á næstu árum.

„Það er kominn tími á að yfirgefa herbúðir Hoffenheim og fara í stærra félag til að berjast um titla," sagði Firmino.

„Í augnablikinu einbeiti ég mér hins vegar að Suður-Ameríkubikarnum."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner