Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 25. ágúst 2015 13:30
Magnús Már Einarsson
De Gea áfram utan hóps hjá Manchester United
David De Gea.
David De Gea.
Mynd: Getty Images
David De Gea var ekki í leikmannahópi Manchester United sem fór til Belgíu fyrir leikinn gegn Club Brugge annað kvöld.

De Gea hefur verið utan hóps í fyrstu leikjum tímabilsins þar sem óvissa hefur verið um framtíð hans undanfarna mánuði.

De Gea hefur verið ítrekað orðaður við Real Madrid en Louis van Gaal vill ekki velja Spánverjann í liðið þar sem hann telur að leikmaðurinn sé ekki með fulla einbeitingu.

Sergio Romero verður því væntanlega áfram í markinu annað kvöld.

Leikmannahópur United á morgun: Romero, Darmian, Smalling, Blind, Shaw, Schneiderlin, Schweinsteiger, Mata, Januzaj, Memphis, Rooney, Johnstone, McNair, Carrick, Fellaini, Herrera, Young, Hernandez.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner