Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 25. nóvember 2015 18:30
Magnús Már Einarsson
Nistelrooy vonar að Vardy bæti met sitt
Nistelrooy setti metið með Manchester United árið 2003.
Nistelrooy setti metið með Manchester United árið 2003.
Mynd: Getty Images
Ruud van Nistelrooy segist vona að Jamie Vardy skori í ellefta leiknum í röð með Leicester.

Vardy jafnaði um helgina met van Nistelrooy í ensku úrvalsdeildinni með því að skora í tíu leikjum í röð.

Vardy getur því bætt metið á laugardag þegar Leicester fær Manchester United í heimsókn.

„Ég lýsti yfir stuðningi við hann á samfélagsmiðlum í síðustu viku og ég meinti það virkilega," sagði van Nistelrooy.

„Þetta væri stórkostlegt fyrir hann. Ég meinti þetta virkilega því að met eru til að slá þau."

„Hann má skora eitt á laugardaginn. Ég vona að hann geri það en vonandi skorar United þrjú og vinnur 3-1. Í fullri alvöru þá verð ég ánægður fyrir hans hönd ef hann skorar."

Athugasemdir
banner
banner