Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 25. nóvember 2016 19:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: BBC 
Pardew: Hef verið í þessari stöðu áður
Pardew á ekki sjö dagana sæla
Pardew á ekki sjö dagana sæla
Mynd: Getty Images
Alan Pardew, stjóri Crystal Palace, hefur ekki áhyggjur af framtíð sinni hjá félaginu þrátt fyrir dapran árangur upp á síðkastið.

Það hefur ekkert lið í efstu fjóru deildunum á Englandi staðið sig verr en Crystal Palace á þessu ári, en þrátt fyrir það segist Pardew vongóður um að halda starfi sínu.

„Þetta er mitt níunda tímabil í ensku úrvalsdeildinni og ég vil að það tíunda verði með Palace," sagði Pardew, sem tók við Palace í janúar á síðasta ári.

Palace mætir botnliði Swanea í sankölluðum sex stiga leik á morgun.

„Sigur myndi gera stöðu okkar skýrari og það myndi líka taka pressuna af okkur. Ég er reynslumikill þjálfari og ég hef verið í þessari stöðu áður," sagði Pardew að lokum.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner