Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 26. apríl 2016 16:30
Magnús Már Einarsson
Petrov stefnir á að snúa aftur í fótboltann eftir hvítblæði
Mynd: Getty Images
Stilyan Petrov, fyrrum fyrirliði Aston Villa, hefur sett stefnuna á að snúa aftur í atvinnumennsku í fótbolta.

Búlgarinn greindist með hvítblæði í mars árið 2012 en hann hefur unnið þá baráttu.

Hinn 36 ára gamli Petrov spilaði í neðri deildunum á Englandi árið 2014 með Wichall Wanderers.

Petrov vonast nú til að snúa aftur í atvinnumennsku í fótbolta og þá jafnvel með Aston Villa í Championship deildinni næsta vetur.

„Ég hef ákveðið að reyna að byrja að spila fótbolta í hærri gæðaflokki á nýjan leik," sagði Petrov í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner