Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 26. maí 2017 13:00
Magnús Már Einarsson
Valencia framlengir við Man Utd
Mynd: Getty Images
Antonio Valencia hefur skrifað undir nýjan samning við Manchester United en hann er nú samningsbundinn þar til í júní 2019.

Hinn 31 árs gamli Valencia var fyrirliði United í 2-0 sigri á Ajax í úrslitum Evrópudeildarinnar í fyrrakvöld.

„Manchester United hefur verið líf mitt síðan 2009 og ég er í skýjunum með að hafa skrifað undir nýjan samning," sagði Valencia.

„Á miðvikudagskvöld náði ég að vinna eina bikarinn sem þetta félag hefur aldrei unnið og það var sannur heiður fyrir mig að vera fyrirliði í úrslitaleiknum."

„Ég vil þakka stjóranum fyrir traustið sem hann hefur sýnt mér á þessu tímabili og ég er viss um að við berjumst á öllum vígstöðum á næsta tímabili."

Athugasemdir
banner
banner
banner