Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 26. júní 2015 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
HM kvenna í dag - Spennandi leikir í 8-liða úrslitum
Þýska landsliðið er gífurlega öflugt.
Þýska landsliðið er gífurlega öflugt.
Mynd: Getty Images
Það eru spennandi viðureignir á dagskrá í 8-liða úrslitum á HM kvenna þar sem tvö af sigurstranglegustu liðum keppninnar eiga mjög erfiða leiki.

Gífurlega sterkt lið Þýskalands, sem slátraði riðlinum sínum og fór létt í gegnum Svía í 16-liða úrslitum, mætir Frökkum sem unnu F-riðil og slógu Suður-Kóreu auðveldlega út í útsláttarkeppninni.

Bandaríkin mæta svo Kínverjum í síðari leik kvöldsins og ljóst er að þar er um stórslag að ræða. Kínverjar slógu út sterkt lið Kamerúna og ljóst að Bandaríkin, sem hafa lengi verið eitt af stórveldum kvennaboltans, þurfa að fara varlega.

Leikir kvöldsins:
20:00 Þýskaland - Frakkland
23:30 Kína - Bandaríkin
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner