Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 26. júní 2015 12:13
Magnús Már Einarsson
Schneiderlin áfram orðaður við Manchester United
Mynd: Getty Images
Orðrómurinn um að miðjumaðurinn Morgan Schneiderlin sé á leið til Manchester United verður alltaf háværari og háværari.

Mirror sagði í gær að Frakkinn sé nálægt því að ganga í raðir Manchester United og í dag sagði Sky Sports sömu sögu.

Hinn 25 ára gamli Schneiderlin vill fara frá Southampton en talið er að félagið vilji ekki selja hann fyrir minna en 25 milljónir punda.

Tottenham og Arsenal hafa einnig sýnt áhuga á að fá Schneiderlin í sínar raðir en Manchester United virðist vera langlíklegasti áfangastaður hans.
Athugasemdir
banner
banner
banner