Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 26. ágúst 2015 10:48
Magnús Már Einarsson
Bannlisti Balotelli - Ekkert djamm og skrautlegar hárgreiðslur
Mynd: Getty Images
AC Milan hefur sett ýmsar klásúlur í lánssamning Mario Balotelli en hann er að koma til félagsins á láni frá Liverpool.

Balotelli hefur verið duglegur að koma sér í fréttirnar undanfarin ár fyrir ýmis uppátæki utan vallar.

Samkvæmt fréttum frá Ítalíu hefur Balotelli skrifað undir sérstakan samning sem varðar hegðun hans utan vallar hjá AC MIlan.

Samkvæmt samningnum er Balotelli meðal annars bannað að reykja sígarettur, vera með skrautlegar hárgreiðslur og fara á djammið.

Þá þarf hann að haga sér vel á samskiptamiðlum en starfsfólk AC Milan mun vakta hvað hann gerir á Instagram, Facebook og Twitter.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner