Jose Mourinho, stjóri Manchester United, hefur greint frá því að Marouane Fellaini verði ekki með í leikjunum gegn CSKA Moskvu á morgun og gegn Crystal Palace um helgina.
Shane Long, framherji Southampton, braut á Fellaini í leik liðanna um helgina. Craig Pawson sýndi Long gula spjaldið en stuðningsmenn United vildu fá rautt spjald á loft.
Shane Long, framherji Southampton, braut á Fellaini í leik liðanna um helgina. Craig Pawson sýndi Long gula spjaldið en stuðningsmenn United vildu fá rautt spjald á loft.
„Það er engin myndavél fyrir Craig og hann tók þessa ákvörðun," sagði Fellaini.
„Í augnablikinu erum við án (Paul) Pogba og (Michael) Carrick. Þá verður Marouane ennþá mikilvægari fyrir okkur."
„Að vera án hans á morgun er erfitt fyrir okkur en ég reikna ekki með að hann verði frá keppni í langan tíma."
Athugasemdir