Cloe Lacasse, leikmaður ÍBV, stefnir á að sækja um íslenskan ríkisborgararétt. Cloe hefur verið einn besti leikmaðurinn í Pepsi-deild kvenna undanfarin ár.
Hin 24 ára gamla Cloe verður gjaldgeng með íslenska landsliðinu í framtíðinni ef hún fær ríkisborgararétt. Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari kvenna, segir að Cloe komi klárlega til greina í liðið ef hún fær ríkisborgararétt.

„Ef að þessu verður og hún fær íslenskan ríkisborgararétt þá er frammistaða hennar á Íslandi síðustu ár búin að vera það góð að hún myndi klárlega koma til greina í íslenska landsliðið," sagði Freyr við Fótbolta.net.
Cloe er frá Kanada sem er í fimmta sæti á heimslista FIFA. Hún hefur ekki komist í landsliðið þar.
„Fyrir tveimur árum hitti ég þjálfara kanadíska landsliðsins og benti honum á Cloe Lacasse. Hann vissi ekkert um hana en þakkaði fyrir ábendinguna. Síðan þá hefur ekkert gerst."
„Ég hef alltaf haft trú á henni og fundist hún vera góður leikmaður. ef hún verður gjaldgeng í íslenska landsliðið þá myndum við skoða það alvarlega. Hún yrði samkeppnishæf eins og aðrir leikmenn," sagði Freyr.
Athugasemdir