Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 26. nóvember 2014 19:30
Ívan Guðjón Baldursson
Nasri: Ronaldo sá eini sem er betri en Agüero
Sergio Agüero er búin að skora 17 mörk í 18 leikjum.
Sergio Agüero er búin að skora 17 mörk í 18 leikjum.
Mynd: Getty Images
Samir Nasri og Sergio Agüero leika saman hjá Manchester City og gerði argentínski framherjinn Agüero þrennu í 3-2 sigri á Bayern München í Meistaradeildinni á þriðjudaginn.

Nasri segir aðeins einn leikmann vera betri en Agüero og það sé hinn portúgalski Cristiano Ronaldo sem hefur skorað 25 mörk í 18 leikjum á tímabilinu.

,,Tölfræðin segir þetta allt, ég þarf ekki að tala um frammistöður hans," sagði Nasri.

,,Hann er stórkostlegur leikmaður, óstöðvandi. Í gær þörfnuðumst við hans og hann stóð við sitt.

,,Agüero er einn af bestu leikmönnum heims, hann er í sama gæðaflokki og leikmenn eins og Lionel Messi og Luis Suarez. Cristiano Ronaldo er sá eini sem er betri enda er hann á sinni eigin plánetu."

Athugasemdir
banner
banner
banner