Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 26. nóvember 2016 18:30
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Klopp: Aldrei séð jafn varnarsinnað lið
Klopp var ángæður með sigur Liverpool í dag
Klopp var ángæður með sigur Liverpool í dag
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, þjálfari Liverpool var ánægður með þolinmæðissigur liðs síns á Sunderland í dag

„Það er ekki mikið að leikgreina eftir þennan leik. Ég hef aldrei séð jafn varnarsinnað lið á ævi minni. Sunderland spilar alltaf varnarsinnaðan fótboltaleik og það er í lagi og við neyddum þá spil að spila þannig." sagði Klopp eftir góðan 2-0 sigur á Sunderland í dag.

„Það er ekkert erfiðara í fótbólta en að brjóta niður sterka vörn en við vorum einbeittir og unnum vel. Þannig náðum við að brjóta þá niður." bætti Klopp við.

Philippe Coutinho meiddist í leiknum á ökkla en Klopp gat ekki sagt hversu alvarleg þau meiðsli væru. Þá fékk Firmino högg á kálfa en það var ekki alvarlegt.




Athugasemdir
banner
banner