Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 26. desember 2017 10:30
Ívan Guðjón Baldursson
Kante franski leikmaður ársins hjá France Football
Mynd: Getty Images
Tímaritið vinsæla France Football er búið að velja besta franska leikmann ársins 2017.

N'Golo Kante, miðjumaður Chelsea, er bestur, Kylian Mbappe er í öðru sæti og Karim Benzema í því þriðja.

Kante varð fyrst Englandsmeistari 2016, með Leicester. Miðjumaðurinn duglegi var seldur til Chelsea um sumarið og vann deildina aftur í ár.

Hinn 19 ára Mbappe varð næstdýrasti leikmaður sögunnar þegar Paris Saint-Germain keypti hann frá Mónakó í sumar.

Kante fékk 92 stig og Mbappe 87. Benzema kom langt á eftir í þriðja sæti, með 52 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner