Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 27. febrúar 2017 14:00
Elvar Geir Magnússon
Stóri Sam: Mikilvægasti sigur tímabilsins
Stóri Sam fagnaði sínum fyrsta heimasigri með Palace.
Stóri Sam fagnaði sínum fyrsta heimasigri með Palace.
Mynd: Getty Images
Stóri Sam Allardyce segir að 1-0 sigur Crystal Palace gegn Middlesbrough á laugardag hafi verið mikilvægustu úrslit tímabilsins.

Þetta var þriðji heimasigur Palace á tímabilinu og liðið komst upp úr fallsvæðinu.

Síðan Stóri Sam tók við stjórnartaumunum í desember hefur Palace aðeins náð að vinna tvo deildarleiki af níu.

„Þetta voru gríðarlega mikilvæg þrjú stig. Ég tel að tveggja vikna hléið hafi hjálpað okkur að safna orku og það sýndi sig. Menn voru að taka réttar ákvarðanir," segir Stóri Sam.

Stóri Sam hefur aldrei fallið úr efstu deild og hann hrósaði stuðningsmönnum Palace.

„Selhurst Park nötraði. Ég fann að stuðningsmenn hrifust af framlagi leikmanna og stóðu algjörlega með okkur."
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner